1. Fræðslusjóðir
  2. Sjómennt
  3. Starfsreglur

Fræðslusjóðir

Guðrúnartún 1, 105 Reykjavík

Sími: 599 1450

Landsmennt

  • Um landsmennt
  • Starfsreglur
  • Aðildarfélög
  • Starfsfólk
  • Skýrslur og tölfræði
  • Spurt og svarað
  • Umsóknargátt

Ríkismennt

  • Um Ríkismennt
  • Starfsreglur
  • Aðildarfélög
  • Starfsfólk
  • Skýrslur og tölfræði
  • Spurt og svarað
  • Umsóknargátt

Sjómennt

  • Um sjómennt
  • Starfsreglur
  • Aðildarfélög
  • Starfsfólk
  • Skýrslur og tölfræði
  • Spurt og svarað
  • Umsóknargátt

Sveitamennt

  • Um Sveitamennt
  • Starfsreglur
  • Aðildarfélög
  • Starfsfólk
  • Skýrslur og tölfræði
  • Spurt og svarað
  • Umsóknargátt

© Fræðslusjóðir

Starfsreglur

Starfsreglur Sjómenntar í heild: skilyrði, upphæðir, áunnin réttindi og frágangur styrkja, bæði fyrir einstaklinga og vinnustaði.

Einstaklingar

Skilyrði fyrir umsókn
  • Félagsmaður sem unnið hefur fullt starf í a.m.k. 6 mánuði af síðustu 24 og greitt til aðildarfélags Sjómenntar á þeim tíma á rétt á stuðningi til starfsmenntunar. Greitt er hlutfallslega fyrir fólk í hlutastörfum.
  • Við ákvörðun upphæðar er miðað við greidd félagsgjöld síðustu 12 mánaða. Félagsgjald af lágmarkslaunum í 100% starfi eða meira gefur fulla styrkupphæð.
  • Fylla þarf út umsóknareyðublað og skila ásamt reikningi/kvittun til viðkomandi stéttarfélags. Umsókn þarf að berast viðkomandi stéttarfélagi innan 12 mánaða frá dagsetningu reiknings.
Áunnin réttindi
  • Félagsmaður, sem unnið hefur fullt starf í a.m.k. sex mánuði sl. 24 mánuði skv. kjarasamningi SA/SFS við SSÍ hjá útgerðum innan SFS, og greitt til aðildarfélags Sjómenntar á þeim tíma, á rétt á stuðningi til náms.
  • Áunnin réttindi félagsmanna innan Landsmenntar, Sjómenntar, Starfsafls, Starfsmenntasjóðs verslunar- og skrifstofufólks, Ríkismenntar SGS og Sveitamenntar SGS og LN haldast óbreytt þrátt fyrir flutning á milli aðildarfélaga sjóðanna.
  • Foreldrar í fæðingar- eða foreldraorlofi geta nýtt sér áunninn rétt ef þeir velja að greiða stéttarfélagsgjöld á meðan á orlofi stendur.
  • Félagsmenn í atvinnuleit halda áunnum rétti sínum eins og hann var við starfslok ef þeir velja að greiða stéttarfélagsgjöld af atvinnuleysisbótum.
  • Sá sem hverfa þarf tímabundið af vinnumarkaði af ástæðum sem valda því að ekki ber að skila tryggingagjaldi af launum hans, heldur í allt að 24 mánuði þeim rétti til starfsmenntunarstyrks sem hann hafði áunnið sér hjá sjóðnum.
  • Félagsmaður sem hverfur frá vinnu og hættir að greiða til aðildarfélags Sjómenntar heldur áunnum réttindum sínum til styrks í 3 mánuði. Að þeim tíma liðnum fellur rétturinn niður.
  • Réttur ellilífeyrisþega (félagsmenn aðildarfélaga SSÍ): helst í allt að 24 mánuði frá því viðkomandi hættir að vinna.

Umsækjandi sem reynist hafa gefið rangar eða villandi upplýsingar, eða notar fölsuð gögn við styrkumsókn, missir rétt sinn til styrks í 36 mánuði. Hafi umsækjandi fengið greidda styrkupphæð á grundvelli falsaðra eða rangra gagna, er heimilt að krefja viðkomandi um endurgreiðslu á heildarupphæð styrks auk dráttarvaxta. Stjórn sjóðsins áskilur sér rétt til að kæra til lögreglu brot af þessu tagi.

Upphæð styrks

Fullur réttur í námsstyrk er 90% af reikningi en þó aldrei meira en kr. 130.000 á ári frá og með 1. janúar 2024 og gildir gagnvart þeim umsóknum sem berast eftir þann tíma.

  • Uppsafnaður réttur; aukinn styrkur til náms: félagsmenn sem ekki hafa nýtt sér rétt sinn síðustu tvö ár eiga rétt á styrk allt að kr. 260.000, eða síðustu þrjú ár allt að kr. 390.000, fyrir eitt samfellt nám eða námskeið samkvæmt nánari reglum sjóðsins. Rétturinn skerðist ekki hafi félagsmaður fengið styrk undir kr. 50.000 á tíma uppsöfnunar (sá styrkur kemur þó til frádráttar). Ferðakostnaður getur að hámarki orðið kr. 130.000 sem hluti af kostnaði í þessu tilviki. Greiðslur til sjóðsins þurfa að hafa borist að lágmarki í 30 af síðustu 36 mánuðum, eða 20 af 24 vegna tveggja ára réttar. (Síðasta breyting á reglum 1. janúar 2024, gagnvart námi sem hefst frá og með þeim tíma.)
Tungumálanám og íslenskunám
  • NÝTT! Hámarksstyrkur vegna tungumálanáms verður kr. 180.000 á almanaksári. Ekki er lengur heimilt að nýta uppsafnaðan rétt til að standa undir slíkum kostnaði. Tekur gildi frá og með 1. ágúst 2026.
  • Félagsmenn sem hafa annað móðurmál en íslensku geta sótt um almennan styrk vegna íslenskunáms eftir mánaðar félagsaðild í aðildarfélagi Sjómenntar.
  • Styrkhæfni nær til alls náms, námskeiða og einkakennslu, þ.m.t. öpp sem uppfylla viðmið sjóðsins um starfstengt nám.
  • Leiðbeinandi sem starfar utan fræðsluaðila sem Mennta- og barnamálaráðuneytið eða Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið hefur viðurkennt þarf að hafa marktæka þekkingu á kennslu tungumála, reynslu af kennslu frá viðurkenndum fræðsluaðila, lokið námi á háskólastigi og fagleg vinnubrögð. Umsókn er hafnað ef þessi viðmið eru ekki fyrir hendi.
  • Sömu viðmið um hæfi leiðbeinanda gilda um annað tungumálanám, námskeið og einkakennslu.
Raunfærnimat og starfstengt netnám
  • Raunfærnimat: félagsmenn aðildarfélaga SGS sem ekki tilheyra markhópi Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins geta sótt um almennan styrk vegna kostnaðarþátttöku í raunfærnimati.
  • Starfstengt netnám: námskeiðið þarf að hafa skilgreint upphaf, endi og leiðbeinanda. Áskrift að vefsíðu/efnisveitu með starfstengdu námskeiðs- eða kennsluefni er styrkt að hámarki til eins árs.
Ferða- og dvalarstyrkir

Einstaklingar sem þurfa að sækja styrkhæft nám eða námskeið um langan veg innanlands eiga rétt á stuðningi við ferða- og dvalarkostnað. Sótt er um á sérstöku eyðublaði og styrkurinn afgreiddur af stéttarfélaginu í umboði Sjómenntar, sér frá og dregst frá hámarki einstaklingsstyrkja.

  • Akstur er styrktur um 50% af almennu kílómetragjaldi eins og það er ákveðið hverju sinni; ekki er tekið þátt í ferðakostnaði vegna aksturs innan við 12 km frá námskeiðsstað eða skóla.
  • Varðandi akstur og flug er alltaf gert ráð fyrir að ódýrasta leiðin sé valin; halda skal akstursdagbók sem skilað er með umsókn.
  • Heimilt er að niðurgreiða 90% af hverju flugfargjaldi, þó að hámarki kr. 130.000 (gildistími frá 1. janúar 2024).
  • Heimilt er að niðurgreiða hverja gistinótt á hótelum/gistiheimilum um að hámarki kr. 6.000.
  • Skila þarf með umsókn staðfestingu frá skóla/fræðsluaðila um þátttöku í námi/námskeiði.
Áfrýjunarréttur og breytingar á reglum

Áfrýjunarréttur: Ef félagsmaður telur sig eiga rétt á styrk til starfsmenntunar, en er hafnað af viðkomandi stéttarfélagi, getur hann vísað umsókn sinni til stjórnar Sjómenntar til afgreiðslu.

Breyting á starfsreglum: Reglur þessar geta tekið breytingum samkvæmt ákvörðun stjórnar hverju sinni.

Fyrirtæki

Fyrirtækjastyrkir

Fyrirtæki, stéttarfélög og/eða fræðsluaðilar sækja um styrki til stjórnar Sjómennt með því að senda umsókn í gegnum umsóknarvefgáttina Áttina (attin.is), þar sem fram koma helstu upplýsingar um viðkomandi fræðsluverkefni.

Almennar reglur um úthlutun
  • Almennur styrkur vegna námskeiða er 90%, þó aldrei meira en kr. 40.000 á kennslustund.
  • Tómstundarnámskeið eru styrkt um 50% af kostnaði.
  • Athugið að greitt er að hámarki kr. 300.000 í styrk vegna náms/námskeiða á hvern starfsmann.
  • Tölvu- og tungumálanámskeið hjá fyrirtækjum eru styrkt skv. almennum reglum, enda teljast slík námskeið ávallt starfstengd. Vinnuvélanámskeið eru styrkt beint til fyrirtækja sem starfstengd námskeið skv. sömu reglum.
  • Íslenskunám fyrir erlenda starfsmenn er styrkt til fyrirtækja skv. almennum reglum af þeim kostnaði sem eftir stendur eftir fjármögnun menntamálaráðuneytis; lagt er til að námskeiðin verði starfsfólkinu að kostnaðarlausu og að fyrirtæki bjóði þau á vinnutíma þar sem því verður við komið.
  • Þarfagreiningar á fræðslu innan fyrirtækja eru styrktar um 90%, í hlutfalli við þann starfsmannafjölda fyrirtækisins sem tilheyrir stéttarfélögum innan SGS.
Nám erlendis
  • Fyrirtæki sem óskar eftir að senda starfsmenn á námskeið erlendis getur sótt um 90% af viðurkenndum námskeiðskostnaði. Styrkur getur þó ekki orðið hærri en kr. 300.000 vegna hvers starfsmanns, og þar af getur ferðakostnaður ekki orðið meiri en kr. 100.000 af heildarupphæð styrks. Ef sambærilegt námskeið er í boði innanlands er ferðakostnaður undanskilinn heildarkostnaði og því ekki styrktur.
  • Náms- og kynnisferðir: Sjómennt veitir ekki styrk til fyrirtækja vegna náms- og kynnisferða til útlanda.
Þróun, nýsköpun og stafrænt námsumhverfi

Afstaða stjórnar til styrkveitinga í þróunarverkefni, stærri fræðsluverkefni og námsefnisgerð er metin hverju sinni út frá eðli verkefnanna. Veittir eru þróunar- og nýsköpunarstyrkir í rafrænt námsumhverfi fyrirtækja, uppsetningu og þróun, að mati stjórnar hverju sinni.

  • Áskrift að rafrænu námsumhverfi/námskerfi er styrkt um 90% af reikningi í hlutfalli við fjölda starfsmanna sem eiga aðild að sjóðnum, aldrei meira en kr. 6.000 á starfsmann á ári, miðað við áskrift í a.m.k. 6–12 mánuði.
  • NÝTT! Frá og með 1. ágúst 2026 er áskrift að stafrænu námsumhverfi, þ.e. upptekin fræðsla (myndbönd og annað stafrænt margmiðlunarefni), fræðslusöfn og fræðsluöpp, styrkt 50% af reikningi fyrir hóp starfsfólks og 90% af reikningi fyrir einstaklingsáskrift.
Frágangur og greiðsla styrkja
  • Launakostnaður fyrirtækja er aldrei hluti af þeim kostnaði námskeiða sem sjóðurinn styrkir; kostnaður vegna veitinga og bókakaupa á námskeiðum er heldur ekki tekinn með.
  • Styrkloforð stjórnar eru ávallt gerð upp og styrkur greiddur eftir að verkefnið hefur farið fram eða námskeið hefur verið haldið. Uppgjöri þarf að fylgja þátttakendalisti með félagsaðild starfsmanna og kvittanir fyrir staðfestum kostnaði. Tekið er á móti allt að 12 mánaða gömlum kvittunum/reikningum. Sé styrks ekki vitjað innan árs frá dagsetningu styrktarloforðs er hann afskráður og felldur niður.
  • Fyrirtæki geta fengið allt að kr. 4.000.000 á ári í styrk.

Reglugerð sjóðsins

Reglurnar hér að ofan eru settar af stjórn sjóðsins á grundvelli reglugerðar hans, sem kveður á um skipulag sjóðsins, stjórn, tekjur og reikningsskil. Lesa reglugerðina.

Á þessari síðu

  • Einstaklingar
  • Skilyrði fyrir umsókn
  • Áunnin réttindi
  • Upphæð styrks
  • Tungumálanám og íslenskunám
  • Raunfærnimat og starfstengt netnám
  • Ferða- og dvalarstyrkir
  • Áfrýjunarréttur og breytingar á reglum
  • Fyrirtæki
  • Fyrirtækjastyrkir
  • Almennar reglur um úthlutun
  • Nám erlendis
  • Þróun, nýsköpun og stafrænt námsumhverfi
  • Frágangur og greiðsla styrkja
  • Reglugerð sjóðsins
Fræðslusjóðir
Sjómennt
Um okkurStarfsreglurAðildarfélögStarfsfólkSkýrslur og tölfræðiSpurt og svarað
Umsóknargátt

Aðrir sjóðir

LandsmenntRíkismenntSveitamennt
Guðrúnartún 1, 105 Reykjavík599 1450
FræðslusjóðirSjómennt
  • Um okkur
  • Starfsreglur
  • Aðildarfélög
  • Starfsfólk
  • Skýrslur og tölfræði
  • Spurt og svarað
  • Umsóknargátt
Guðrúnartún 1, 105 Reykjavík599 1450

Aðrir sjóðir

LandsmenntRíkismenntSveitamennt
Fræðslusjóðir (forsíða)