1. Fræðslusjóðir
  2. Sveitamennt
  3. Starfsreglur

Fræðslusjóðir

Guðrúnartún 1, 105 Reykjavík

Sími: 599 1450

Landsmennt

  • Um landsmennt
  • Starfsreglur
  • Aðildarfélög
  • Starfsfólk
  • Skýrslur og tölfræði
  • Spurt og svarað
  • Umsóknargátt

Ríkismennt

  • Um Ríkismennt
  • Starfsreglur
  • Aðildarfélög
  • Starfsfólk
  • Skýrslur og tölfræði
  • Spurt og svarað
  • Umsóknargátt

Sjómennt

  • Um sjómennt
  • Starfsreglur
  • Aðildarfélög
  • Starfsfólk
  • Skýrslur og tölfræði
  • Spurt og svarað
  • Umsóknargátt

Sveitamennt

  • Um Sveitamennt
  • Starfsreglur
  • Aðildarfélög
  • Starfsfólk
  • Skýrslur og tölfræði
  • Spurt og svarað
  • Umsóknargátt

© Fræðslusjóðir

Starfsreglur

Starfsreglur Sveitamenntar í heild: skilyrði, upphæðir, áunnin réttindi og frágangur styrkja, bæði fyrir einstaklinga og vinnustaði.

Einstaklingar

Skilyrði fyrir umsókn
  • Félagsmaður sem unnið hefur fullt starf í a.m.k. 6 mánuði af síðustu 24 og greitt til aðildarfélags Sveitamenntar á þeim tíma á rétt á stuðningi til starfsmenntunar. Greitt er hlutfallslega fyrir fólk í hlutastörfum.
  • Við ákvörðun upphæðar er miðað við greidd félagsgjöld síðustu 12 mánaða. Félagsgjald af lágmarkslaunum í 100% starfi eða meira gefur fulla styrkupphæð.
  • Fylla þarf út umsóknareyðublað og skila ásamt reikningi/kvittun til viðkomandi stéttarfélags. Umsókn þarf að berast viðkomandi stéttarfélagi innan 12 mánaða frá dagsetningu reiknings.
Áunnin réttindi
  • Félagsmaður sem hverfur frá vinnu vegna veikinda, heimilisástæðna eða af öðrum gildum ástæðum, heldur rétti sínum til styrks enda komi hann aftur til vinnu eftir starfshlé, og skal þá eiga rétt á greiðslu í samræmi við reglur.
  • Foreldrar í fæðingarorlofi geta nýtt sér áunninn rétt ef þeir velja að greiða félagsgjöld á meðan á orlofi stendur.
  • Félagsmenn í atvinnuleit halda áunnum rétti sínum eins og hann var við starfslok ef þeir velja að greiða félagsgjöld af atvinnuleysisbótum.
  • Áunnin réttindi félagsmanna innan Sveitamenntar SGS, Ríkismenntar SGS, Landsmenntar, Starfsafls, Sjómenntar og Starfsmenntasjóðs verslunar- og skrifstofufólks haldast óbreytt þrátt fyrir flutning á milli aðildarfélaga/deilda sjóðanna.
  • Félagsmaður sem hverfur frá vinnu og hættir að greiða til aðildarfélags Sveitamenntar heldur áunnum réttindum sínum til styrks í 3 mánuði. Að þeim tíma liðnum fellur rétturinn niður.
  • Styrkir til félagsmanna á sjúkradagpeningum: félagsmenn sem taka sjúkradagpeninga halda réttindum til styrks í allt að 6 mánuði eins og réttindi voru við starfslok.
  • Réttur ellilífeyrisþega: helst í allt að 24 mánuði frá því viðkomandi hættir að vinna (samþykkt í mars 2012).
  • Ákvörðun um styrk o.fl.: viðkomandi stéttarfélag tekur ákvörðun um það hvort orðið skuli við umsókn um styrk, hversu hár hann skuli vera, og afgreiðir hann í samræmi við þessar reglur.

Umsækjandi sem reynist hafa gefið rangar eða villandi upplýsingar, eða notar fölsuð gögn við styrkumsókn, missir rétt sinn til styrks í 36 mánuði. Hafi umsækjandi fengið greidda styrkupphæð á grundvelli falsaðra eða rangra gagna, er heimilt að krefja viðkomandi um endurgreiðslu á heildarupphæð styrks auk dráttarvaxta. Stjórn sjóðsins áskilur sér rétt til að kæra til lögreglu brot af þessu tagi.

Upphæð styrks

Fullur réttur í námsstyrk er 100% af reikningi en þó aldrei meira en kr. 180.000 á ári frá og með 1. janúar 2026 og gildir gagnvart þeim umsóknum sem berast eftir þann tíma.

  • Uppsafnaður réttur: félagsmenn sem ekki hafa nýtt sér rétt sinn síðustu þrjú ár eiga rétt á styrk fyrir eitt samfellt nám eða námskeið, sem og þeir sem ekki hafa nýtt sér rétt sinn síðustu tvö ár. Rétturinn skerðist ekki hafi félagsmaður fengið styrk undir kr. 50.000 á tíma uppsöfnunar (sá styrkur kemur þó til frádráttar). Ferðakostnaður getur að hámarki orðið kr. 180.000 sem hluti af kostnaði í þessu tilviki. Greiðslur til sjóðsins þurfa að hafa borist að lágmarki í 30 af síðustu 36 mánuðum, eða 20 af 24 vegna tveggja ára réttar.
  • Uppsafnaður tveggja og þriggja ára réttur fyrir árin 2023–2025 er áfram kr. 130.000 á ári miðað við fullt starf, en kr. 180.000 frá og með 1. janúar 2026.
  • Náms- og kynnisferðir: styrkir til náms- og kynnisferða eru eingöngu veittir til sveitarfélaga og stofnana þeirra, ekki til einstaklinga sérstaklega. Ekki er hægt að fá greiddan styrk fyrir námskeiðshluta slíkra ferða sér.
Tungumálanám og íslenskunám
  • NÝTT! Hámarksstyrkur vegna tungumálanáms verður kr. 180.000 á almanaksári. Ekki er lengur heimilt að nýta uppsafnaðan rétt til að standa undir slíkum kostnaði. Tekur gildi frá og með 1. ágúst 2026.
  • Félagsmenn sem hafa annað móðurmál en íslensku geta sótt um almennan styrk vegna íslenskunáms eftir mánaðar félagsaðild í aðildarfélagi Sveitamenntar.
  • Styrkhæfni nær til alls náms, námskeiða og einkakennslu, þ.m.t. öpp sem uppfylla viðmið sjóðsins um starfstengt nám.
  • Leiðbeinandi sem starfar utan fræðsluaðila sem Mennta- og barnamálaráðuneytið eða Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið hefur viðurkennt þarf að hafa marktæka þekkingu á kennslu tungumála, reynslu af kennslu frá viðurkenndum fræðsluaðila, lokið námi á háskólastigi og fagleg vinnubrögð. Umsókn er hafnað ef þessi viðmið eru ekki fyrir hendi.
  • Sömu viðmið um hæfi leiðbeinanda gilda um annað tungumálanám, námskeið og einkakennslu.
Raunfærnimat og starfstengt netnám
  • Raunfærnimat: félagsmenn aðildarfélaga SGS sem ekki tilheyra markhópi Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins geta sótt um almennan styrk vegna kostnaðarþátttöku í raunfærnimati.
  • Starfstengt netnám: námskeiðið þarf að hafa skilgreint upphaf, endi og leiðbeinanda. Áskrift að vefsíðu/efnisveitu með starfstengdu námskeiðs- eða kennsluefni er styrkt að hámarki til eins árs.
Ferða- og dvalarstyrkir

Einstaklingar sem þurfa að sækja styrkhæft nám eða námskeið um langan veg innanlands eiga rétt á stuðningi við ferða- og dvalarkostnað. Sótt er um á sérstöku eyðublaði og styrkurinn afgreiddur af stéttarfélaginu í umboði Sveitamenntar, sér frá og dregst frá hámarki einstaklingsstyrkja.

  • Akstur er styrktur um 50% af almennu kílómetragjaldi eins og það er ákveðið hverju sinni; ekki er tekið þátt í ferðakostnaði vegna aksturs innan við 12 km frá námskeiðsstað eða skóla.
  • Varðandi akstur og flug er alltaf gert ráð fyrir að ódýrasta leiðin sé valin; halda skal akstursdagbók sem skilað er með umsókn.
  • Heimilt er að niðurgreiða 100% af hverju flugfargjaldi, þó að hámarki kr. 180.000 (gildistími frá 1. janúar 2024).
  • Heimilt er að niðurgreiða hverja gistinótt á hótelum/gistiheimilum um að hámarki kr. 6.000.
  • Skila þarf með umsókn staðfestingu frá skóla/fræðsluaðila um þátttöku í námi/námskeiði.
Áfrýjunarréttur og breytingar á reglum

Endurskoðun: Ef félagsmaður telur sig eiga rétt á styrki til starfsmenntunar, en er hafnað um styrk af viðkomandi verkalýðsfélagi, getur hann vísað umsókn sinni til stjórnar Sveitamenntar til afgreiðslu.

Breyting á starfsreglum: Reglur þessar geta tekið breytingum samkvæmt ákvörðun stjórnar hverju sinni.

Sveitarfélög og stofnanir

Starfsreglur sveitarfélagadeildar
  1. Sveitarfélagadeild er hluti af starfsmenntunarsjóði aðila og er markmið deildarinnar að auka möguleika sveitarfélaga og stofnana þeirra á að þróa starfssvið sitt í samræmi við kröfur sem gerðar eru á hverjum tíma, og efla starfsmenntun starfsmanna í þeim félögum sem eiga aðild að sjóðnum.
  2. Deildin sinnir hlutverki sínu með því að veita styrki til fræðsluverkefna á sviði starfsmenntunar í samræmi við markmið sveitarfélaga sem í sjóðinn greiða, stéttarfélaga sem að sjóðnum standa, eða verkefna sem sjóðstjórn skipuleggur, auk verkefna sem aðilar semja um í kjarasamningi.
  3. Umsóknir skulu sendar til stjórnar sjóðsins með lýsingu á fræðsluverkefninu, skipulagi þess, efnisinntaki, áætlaðri framkvæmd, kostnaði, öðrum styrkjum og framlagi umsækjanda. Úthlutun úr sjóðnum fer fram a.m.k. ársfjórðungslega samkvæmt samræmdu matskerfi stjórnar.

Undanskilið er háskólanám starfsmanna hjá sveitarfélögum eða stofnunum þeirra; slíkt nám er styrkt með einstaklingsstyrkjum.

Almenn og starfstengd námskeið á vinnustað
  • Öll starfstengd og almenn námskeið á vinnustað eru styrkt 100% af kostnaði gagnvart þátttakendum sem jafnframt eru félagsmenn í aðildarfélagi Starfsgreinasambands Íslands á landsbyggðinni.
  • Ef sveitarfélag eða stofnun þess sækir um styrki vegna tómstundanámskeiða eru þau styrkt um 50% af kostnaði gagnvart sama hópi starfsmanna.
  • Launakostnaður er aldrei hluti af þeim kostnaði námskeiða sem sjóðurinn styrkir; kostnaður vegna veitinga og bókakaupa á námskeiðum er heldur ekki tekinn með.
  • Styrkloforð stjórnar eru ávallt gerð upp og styrkur greiddur eftir að námskeið hefur verið haldið, gegn þátttakendalista og kvittunum fyrir staðfestum kostnaði (allt að 12 mánaða gömlum). Sé styrks ekki vitjað innan árs frá styrktarloforði er hann afskráður og felldur niður.
  • Veittir eru þróunar- og nýsköpunarstyrkir í rafrænt námsumhverfi, uppsetningu og þróun, að mati stjórnar. Áskrift að rafrænu námsumhverfi/námskerfi er styrkt 100% af reikningi í hlutfalli við fjölda starfsmanna sem eiga aðild að sjóðnum, að hámarki kr. 6.000 á starfsmann á ári, miðað við áskrift í a.m.k. 6–12 mánuði.
  • NÝTT! Frá og með 1. ágúst 2026 er upptekin fræðsla, fræðslusöfn og fræðsluöpp styrkt 50% af reikningi fyrir hóp starfsfólks og 100% af reikningi fyrir einstaklingsáskrift.
Náms- og kynnisferðir

Sveitamennt veitir styrk að hámarki kr. 170.000 til sveitarfélags eða stofnunar þess vegna þátttöku hvers einstaklings í náms- og kynnisferðum innanlands eða erlendis. Styrkurinn nær yfir kostnað vegna flugs, gistingar og ferða á milli staða. Hámarksstyrkur er veittur á fjögurra ára fresti.

  • Á hverju fjögurra ára tímabili gefst sama starfsmannahópi kostur á að sækja um styrk til náms- og kynnisferðar innanlands, hafi styrkur áður verið fullnýttur til utanfarar. Auka styrkur innanlands getur orðið að hámarki kr. 90.000 á einstakling. Ekki fæst styrkur fyrir ferðum innanbæjar, námsgögnum eða veitingum.
  • Við afgreiðslu er m.a. litið til þess hvort tilgangur ferðarinnar sé að kynnast sambærilegri starfsemi til framþróunar í starfi, eða hvort um viðbót við námskeið/tengsl við þróunarstarf sé að ræða. Umsókn skal fylgja staðfesting móttökuaðila, nafnalisti, og a.m.k. sex tíma fræðsludagskrá á tveimur vinnudögum, að hámarki þrjár gistinætur. Ekki fæst greitt fyrir fræðsluhluta ferðarinnar sérstaklega, aðeins heildarpakkann.
  • Að verkefni loknu skal skila til skrifstofu sjóðsins uppgjöri vegna ferðarinnar, með lista yfir þátttakendur og félagsaðild þeirra, ásamt afritum af greiddum reikningum viðkomandi sveitarfélags eða stofnunar.
Nám og námskeið erlendis

Ef sveitarfélag eða stofnun þess óskar eftir að senda starfsfólk til að sækja nám eða námskeið erlendis sem ekki stendur til boða innanlands, er hægt að sækja um styrk að hámarki kr. 170.000 vegna hvers einstaklings. Ef sambærilegt námskeið er í boði innanlands er ferðakostnaður undanskilinn heildarkostnaði og því ekki styrktur. Námskeiðsgögn/bækur eru ekki styrkt sérstaklega.

Samstarfssamningur við Fræðslusetrið Starfsmennt

Félagsmenn í aðildarfélögum innan SGS geta sótt námskeið sem Fræðslusetrið Starfsmennt býður upp á vítt og breitt um landið. Sveitamennt greiðir milliliðalaust, skv. samningi, fyrir þátttöku almennra starfsmanna sem jafnframt eru félagsmenn aðildarfélaga SGS á landsbyggðinni.

Stjórn sjóðsins áskilur sér rétt til breytinga á starfsreglunum án fyrirvara.

Reglugerð sjóðsins

Reglurnar hér að ofan eru settar af stjórn sjóðsins á grundvelli reglugerðar hans, sem kveður á um skipulag sjóðsins, stjórn, tekjur og reikningsskil. Lesa reglugerðina.

Á þessari síðu

  • Einstaklingar
  • Skilyrði fyrir umsókn
  • Áunnin réttindi
  • Upphæð styrks
  • Tungumálanám og íslenskunám
  • Raunfærnimat og starfstengt netnám
  • Ferða- og dvalarstyrkir
  • Áfrýjunarréttur og breytingar á reglum
  • Sveitarfélög og stofnanir
  • Starfsreglur sveitarfélagadeildar
  • Almenn og starfstengd námskeið á vinnustað
  • Náms- og kynnisferðir
  • Nám og námskeið erlendis
  • Samstarfssamningur við Fræðslusetrið Starfsmennt
  • Reglugerð sjóðsins
Fræðslusjóðir
Sveitamennt
Um okkurStarfsreglurAðildarfélögStarfsfólkSkýrslur og tölfræðiSpurt og svarað
Umsóknargátt

Aðrir sjóðir

LandsmenntRíkismenntSjómennt
Guðrúnartún 1, 105 Reykjavík599 1450
FræðslusjóðirSveitamennt
  • Um okkur
  • Starfsreglur
  • Aðildarfélög
  • Starfsfólk
  • Skýrslur og tölfræði
  • Spurt og svarað
  • Umsóknargátt
Guðrúnartún 1, 105 Reykjavík599 1450

Aðrir sjóðir

LandsmenntRíkismenntSjómennt
Fræðslusjóðir (forsíða)